|
|||
2024-07-02 19:18:23 CEST 2024-07-02 19:18:23 CEST REGULATED INFORMATION Fossar fjárfestingarbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFossar fjárfestingarbanki hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokkiFossar fjárfestingarbanki hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki FOS 26 1 sem gefinn er út undir 12.000.000.000 útgáfuramma bankans. FOS 26 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk 1,5% vaxtaálags með lokagjalddaga þann 10. janúar 2026. Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.500 m.kr. á pari (genginu 100,0). Skuldabréfin voru seld í einkaútgáfu (e. private placement). Nafnverðseining skuldabréfanna er 20 m.kr. og var útboðið því undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu flokksins og umsókn um töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða þá birt á vefsíðu bankans: www.fossar.is/fjarfestar. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 10. júlí 2024.
Ásgrímur Gunnarsson |
|||
|