2016-10-01 15:34:39 CEST

2016-10-01 15:34:39 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. : Endurkaupaáætlun Fjarskipta hf. lokið


Gildistími endurkaupaáætlunar Fjarskipta hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll
Íslands hf. þann 1. júní 2016, er liðinn. Fjarskipti keyptu samtals 6.651.341
eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,44% af útgefnum hlutum í
félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 299.999.968 kr.

Tilkynnt var um framkvæmd endurkaupaáætlunar Fjarskipta hf. með tilkynningu til
Kauphallar Íslands hf. þann 1. júní 2016. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup
félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 6.734.000 hlutum eða sem nemur 2,50% af
útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin var í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt
henni yrði lokið áður.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga."

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is

[]