2016-10-03 19:11:37 CEST

2016-10-03 19:11:37 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Fyrirtækjafréttir

Sjóvá - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. sem haldinn var 11. mars 2016 veitti
stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 156.243.676 eigin hluti í
félaginu, en það jafngildir um 10% af útgefnu hlutafé félagsins. Heimildina
skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða
til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. 

Sami aðalfundur veitti stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. einnig heimild til
þess að kaupa hluti í félaginu með framkvæmd endurkaupaáætlunar að hámarki
156.243.676 hlutir, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en
2.000 milljónir króna. Heimildin gildir fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó
aldrei lengur en til 11. mars 2017. 

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. tilkynntu um framkvæmd endurkaupaáætlunar þann 9.
júní 2016. Endurkaupaáætlunin var í gildi til 30. september 2016 og keypti
félagið samkvæmt áætluninni samtals 14.777.110 eigin hluti að kaupverði
175.807.779 krónur, eða sem nemur 0,95% af útgefnu hlutafé í Sjóvá-Almennum
tryggingum hf. 

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hafa á grundvelli fyrrgreindra samþykkta og að
teknu tilliti til kaupa á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætluninni sem lauk
þann 30. september 2016 tekið ákvörðun um frekari kaup á eigin hlutum samkvæmt
endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.
Endurkaupin munu að hámarki nema 131.550.793 hlutum eða 8,42% af útgefnum
hlutum í félaginu, en þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 1.700
milljónir króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017 en þó
aldrei lengur en til 11. mars 2017 nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt
fyrir þann tíma. 

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd
endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á
hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr.
2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr.
630/2005. 

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup
hvers dags munu að hámarki nema 3.757.231 hlut eða sem nemur 25% af meðaltali
daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallar Íslands hf.
 í september 2016. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem
nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði
í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er
hærra. 

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða
tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara
fram. 

Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000