2013-02-08 11:02:27 CET

2013-02-08 11:03:29 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Samkomulag um endurfjármögnun


Í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti tilkynnist hér með, að Kópavogsbær
hefur gert samkomulag við Lánasjóð sveitarfélaga um lán að fjárhæð ISK 5
milljarðar til að endurfjármagna lán að fjárhæð EUR 35 milljónir við Dexia
Local Crédit, sem er á gjalddaga í maí 2013. Mismuninn mun bærinn greiða með
handbæru fé. 

Kópavogsbær hefur að undanförnu einnig unnið að skammtíma framlengingu og/eða
fjármögnun á hluta af Dexia-láninu til að dreifa kaupum á gjaldeyri fram á
haust 2013. Á þessu stigi er reiknað með jákvæðri niðurstöðu úr þeirri vinnu. 

Bærinn hefur einnig gert upp erlenda lánalínu við innlendan banka að fjárhæð um
2,7 milljarðar ISK. Þetta lán var endurfjármagnað með láni frá sama banka í
íslenskum krónum.