2015-06-04 10:30:00 CEST

2015-06-04 10:30:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir

Áhrif verkfalla og kjarasamninga á fyrsta ársfjórðung Haga hf.


Í fréttatilkynningu um ársuppgjör Haga sem birt var 12. maí kom fram að horfur
í rekstri félagsins fyrir rekstrarárið 2015/16, sem hófst nú í mars, væru
sambærilegar og árið á undan. Áætlun félagsins fyrir rekstrarárið byggði á þeim
horfum. Mikil óvissa ríkti á vinnumarkaði en í áætlun ársins gerði félagið ráð
fyrir hóflegri hækkun launa og stöðugleika í verðlagi og gengi íslensku
krónunnar. Enn ríkir óvissa á vinnumarkaði, þó svo að samningar hafi tekist við
meginþorra starfsmanna Haga. Kostnaðarmat SA á þeim kjarasamningi, sem snýr
m.a. að starfsfólki Haga, sem fer til atkvæðagreiðslu nú í júní er 2015: 7,3%,
2016: 5,7%, 2017: 3,6% og 2018: 2,3%. Kostnaðarmat SA byggir á meðaltalshækkun,
en þegar liggur fyrir að kostnaðarauki Haga er umfram framangreint meðaltal. 

Verkfallsaðgerðir undanfarnar vikur, sem sumar hverjar standa enn, hafa haft
neikvæð áhrif á rekstur Haga. Vöruskortur á mikilvægum vöruflokkum, eins og
kjúklingi, svínakjöti, nautakjöti og fleirum, hefur haft nokkur áhrif á rekstur
félagsins á tímabilinu. 

Nú þegar er ljóst að áhrif verkfalla og kostnaðarauki vegna kjarasamninga mun
setja mark sitt á rekstrarniðurstöðu fyrsta ársfjórðungs Haga, sem lauk í lok
maímánaðar. Gera má ráð fyrir að hagnaður fyrsta ársfjórðungs verði um 15%
lægri en á síðasta ári. Það er von félagsins að fljótlega takist að ljúka öllum
samningum á vinnumarkaði, þannig að framangreind neikvæð áhrif séu til skamms
tíma. 





Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.