|
|||
![]() |
|||
2016-05-18 18:42:10 CEST 2016-05-18 18:42:10 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Stækkun á EUR 225m skuldabréfaútgáfu að upphæð 75 milljón evraÍslandsbanki hefur stækkað EUR 225 skuldabréfaflokk sinn um 75 milljón evrur (10,5 ma. kr.) á gjalddaga 2018 og ber 2,875% fasta vexti. Skuldabréfin voru seld til fjárfesta á meginlandi Evrópu, en Deutsche Bank og JP Morgan sáu um sölu bréfanna. Heildarstærð útgáfunnar er nú 300 milljón evrur. Verð bréfanna jafngildir 247 punkta álagi yfir fljótandi vexti í evrum. Stefnt er að skráningu skuldabréfanna í Kauphöllina á Írlandi. Útgáfan er gefin út undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans að upphæð 750 milljón dollara. Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla https://www.islandsbanki.is/um- islandsbanka/fjarfestatengsl/ Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#2013746] |
|||
|