2008-05-21 12:22:54 CEST

2008-05-21 12:28:23 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Moody's staðfestir lánshæfismatseinkunn Kaupþings banka



Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur staðfest lánshæfismatseinkunn
langtímaskuldbindinga Kaupþings banka sem A1, einkunnir vegna
innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem P-1 og
einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem C-. Horfur eru stöðugar.

Staðfesting Moody's fylgir í kjölfar endurmats á lánshæfi ríkissjóðs
í Aa1 úr Aaa.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri
Fjárstýringar,
í síma 444 6126 og Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri
Samskiptasviðs, í síma
444 6112.