|
|||
2024-03-27 17:02:00 CET 2024-03-27 17:02:01 CET REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundarEik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2024. Upplýsingar vegna skráningar.Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 16:00, fimmtudaginn 11. apríl 2024, í Sjálandi, Ránargrund 4, 210 Garðabæ, auk þess sem hluthöfum gefst kostur á að taka þátt í fundinum rafrænt. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum eru minntir á að skrá sig tímanlega á heimasíðunni https://www.lumiconnect.com/meeting/eik2024 og ekki seinna en kl. 16:00 miðvikudaginn 10. apríl 2024. Opnað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 3. apríl 2024. Viðhengi |
|||
|