2009-06-19 18:10:05 CEST

2009-06-19 18:11:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

- Landsvirkjun og ríkið gera viðbúnaðarsamning


Mikil óvissa hefur ríkt í íslensku efnahagslífi frá falli viðskiptabankanna í
október sl.  Á sama tíma hefur verið mikil óvissa á alþjóðlegum
fjármálamörkuðum sem hefur leitt til þess að matsfyrirtæki hafa lækkað
lánshæfiseinkunnir fjölmargra aðila.  Lánshæfiseinkunnir íslenska ríkisins og
Landsvirkjunar eru þar engin undantekning og hafa lækkað í BBB- hjá Standard &
Poor´s og Baa1 hjá Moody's Investor Service. 

Landsvirkjun hefur haft lánshæfiseinkunn síðan 1998 í því skyni að auðvelda
fyrirtækinu aðgang að lánsfé en Landsvirkjun hefur frá stofnun fjármagnað
virkjunarframkvæmdir að mestu leyti á erlendum markaði.  Matsfyrirtækin hafa
frá upphafi gefið Landsvirkjun sömu lánshæfiseinkunn og íslenska ríkinu. 

Erlendir aðilar hafa nokkrar áhyggjur af kerfisáhættu í íslensku efnahagslífi,
m.a. vegna óvissu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.  S&P´s setti lánshæfiseinkunn
Landsvirkjunar á athugunarlista hinn 8. maí sl. og metur horfur neikvæðar.  Í
rökstuðningi er einkum lögð áhersla á að óvissa sé um hvort íslenska ríkið muni
koma tímanlega til aðstoðar ef fyrirtækið lendir í fjárhagserfiðleikum.  Til að
bregðast við og draga úr áhyggjum erlendra aðila hafa Landsvirkjun og ríkið
gert með sér viðbúnaðarsamning.  Samningurinn er með þeim hætti að ef
Landsvirkjun hefur ekki nægjanlegt fjármagn til að mæta vaxtagreiðslum eða
afborgunum lána mun Seðlabankinn afhenda fyrirtækinu erlendan gjaldeyri og
Landsvirkjun afhenda bankanum krónur eða skuldabréf í staðinn.  Fjárhæð
samningsins er að hámarki 300 milljónir Bandaríkjadala og rennur hann út 1.
júlí 2011. 

Lausafé Landsvirkjunar er nú um 90 milljónir Bandaríkjadala en að auki hefur
fyrirtækið aðgang að erlendu veltiláni.  Að veltiláninu standa fjórtán
alþjóðlegar fjármálastofnanir, þar á meðal Barclay's, Citigroup, JP Morgan og
Société Générale.  Landsvirkjun hefur því mikinn aðgang að lausafé í erlendri
mynt sem ásamt fé úr rekstri dugar til greiðslu vaxta og afborgana út árið
2010.  Því eru hverfandi líkur á því að reyna muni á viðbúnaðarsamninginn. 

Nánari upplýsingar veita:
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar, í síma
515-9000, netfang: stefanp@lv.is og 
Hjördís Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi fjármálaráðherra, í síma 545-9200, netfang:
hjordis.d.vilhjalmsdottir@fjr.stjr.is.