|
|||
2012-04-26 10:33:52 CEST 2012-04-26 10:34:53 CEST REGULATED INFORMATION Grindavíkurbær - ÁrsreikningurÁrsreikningur Grindavíkurbæjar fyrir árið 2011 var tekinn til fyrri umræðu 25. apríl 2012Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2011 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Grindavíkur þann 25. apríl 2012. Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn og verður seinni umræða þann 30. maí 2012 og á þeim fundi er samþykkt bæjarstjórnar á ársreikningnum fyrirhuguð. Ef bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd og við afgreiðslu og samþykkt bæjarstjórnar koma ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans, munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun. |
|||
|