2011-01-24 22:49:37 CET

2011-01-24 22:50:37 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Nýr framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur



Ingi Jóhannes Erlingsson tók í dag tímabundið við sem framkvæmdastjóri fjármála
hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Ingi Jóhannes var forstöðumaður fjár- og
áhættustýringar hjá OR og tekur hann við af Önnu Skúladóttur. Gengið frá
samkomulagi um starfslok hennar í dag. 
Ingi Jóhannes er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum (MIBS) frá Háskólanum í
Suður Karólínu í Bandaríkjunum og viðskiptafræðingur, cand. oecon. af fjármála
og reikningshaldssviði, frá Háskóla Íslands. 
Helgi Þór Ingason forstjóri segir að þau verkefni, sem eru mest aðkallandi hjá
fyrirtækinu nú um mundir, séu tengd fjármögnun þess og hann vilji stilla upp
breyttu liði. Á vegum hans er nú starfandi samráðshópur með eigendum OR um
fjármögnun fyrirtækisins og verkefna þess og hefur Ingi Jóhannes starfað þétt
með þeim hópi. Helgi Þór kynnti þessa breytingu á stjórnendateyminu fyrir
stjórn OR á fundi í dag. 
Ingi Jóhannes hefur undafarin átta ár starfað í fjármálum OR og síðustu fimm
árin sem yfirmaður fjár- og áhættustýringar. Áður starfaði Ingi Jóhannes hjá
Íslandsbanka og Flugleiðum við fjárstýringu og hjá Handsali við verðbréfamiðlun
og ráðgjöf.