|
|||
2012-07-25 16:00:00 CEST 2012-07-25 16:01:07 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurÖssur - Annar ársfjórðungur 2012ÁGÆTUR SÖLUVÖXTUR Sala - Söluvöxtur var ágætur eða 3%, mælt í staðbundinni mynt. Heildarsalan nam 103 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 105 milljónir dala á öðrum ársfjórðungi 2011. Söluvöxtur í spelkum og stuðningsvörum var ágætur eða 4%, mælt í staðbundinni mynt. Söluvöxtur í stoðtækjum var flatur eða 1%, mælt í staðbundinni mynt. Arðsemi - Hagnaður nam 10 milljónum dala eða 10% af sölu. EBITDA nam 19 milljónum Bandaríkjadala eða 19% af sölu og framlegð nam 64 milljónum dala eða 62% af sölu. Jón Sigurðsson, forstjóri:"Það gleður okkur að geta sagt frá því að SYMBIONIC LEG, sem var kynntur á síðasta ári, er nú til sölu á öllum helstu mörkuðum. Vel tókst til við markaðssetninguna og viðbrögð notenda hafa verið mjög jákvæð. Söluvöxtur á öðrum ársfjórðungi var ágætur. Slök sala á stoðtækjum í Bandaríkjunum hefur áhrif á heildarsöluna, en aukið eftirlit frá endurgreiðsluaðilum hefur gert það að verkum að viðskiptavinir eru varkárir. Sala á öðrum mörkuðum var góð, sérstaklega sala á stoðtækum í Evrópu og sala í Asíu var heilt yfir mjög góð." Markaðssetning á SYMBIONIC LEG - SYMBIONIC LEG, sem er nýjasta viðbótin í Bionic vörulínu Össurar, er nú til sölu á öllum helstu mörkuðum. SYMBIONIC LEG sameinar þekkta getu RHEO KNEE og PROPRIO FOOT í eina heildstæða lausn sem veitir einstaka virkni fyrir þá sem eru aflimaðir fyrir ofan hné. Þessi byltingarkennda vara er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Oscar Pistorius valinn í frjálsíþróttalið Suður-Afríku - Suður-afríski hlauparinn Oscar Pistorius er fyrsti aflimaði hlauparinn til þess að vera valin í landslið ófatlaðra til að keppa á meðal þeirra bestu. Oscar, sem hefur verið kallaður "the Blade Runner", notar Cheetah hlaupafætur frá Össuri, en hann mun keppa fyrir hönd Suður- Afríku í 400 metra hlaupi einstaklinga og 4x400 metra boðhlaupi. Alþjóðleg markaðsdeild - Til þess að auka samkeppnishæfni Össurar í breyttu markaðsumhverfi hefur aukin áhersla verið lögð á markvissari markaðssetningu á virkni lausna Össurar. Til þess að ná þessu fram og bæta upplifun viðskiptavina Össurar hefur nýrri alþjóðlegri markaðsdeild verið komið á fót sem mun starfa þvert á deildir og lönd. Áætlun 2012 - Áætlun fyrir árið 2012 gerir ráð fyrir innri söluvexti á bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt, og EBITDA á bilinu 20-21% af veltu, leiðrétt fyrir einskiptistekjum og -kostnaði. Vegna markaðsaðstæðna á stoðtækjamarkaði í Bandaríkjunum og minni sölu á því svæði gera stjórnendur hins vegar ráð fyrir því að niðurstöður ársins 2012 verði í lægri mörkum áætlunarinnar, bæði varðandi sölu og EBITDA. Símafundur á morgun, fimmtudaginn 26. júlí, kl. 10:00 Á morgun, fimmtudaginn 26. júlí, verður haldinn símafundur þar sem farið verður yfir niðurstöður ársfjórðungsins. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgjast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru: Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða +46(0)8 505 598 53 Bandaríkin: +1 866 458 40 87 Ísland: 800 8660 Nánari upplýsingar: Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044 Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins. Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors [HUG#1629296] |
|||
|