2017-12-05 14:47:29 CET

2017-12-05 14:47:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Skilyrt endurkaupatilboð


Íslandsbanki tilkynnti í dag um skilyrt endurkaupatilboð á EUR
300.000.000 2,875% skuldabréfaútgáfu á gjalddaga 27. júlí 2018 (ISIN
XS1266140984). Tilboðið er háð þeim skilmálum og skilyrðum sem lýst er í
endurkaupatilboði (e. Tender Offer Memorandum) dagsett 5. desember 2017.
Endurkaupatilboðið er liður í lausafjárstýringu Íslandsbanka og miðar meðal
annars að því að minnka endurfjármögnunaráhættu og kostnað við
lausafjárstýringu.

Nánari upplýsingar um endurkaupin er að finna í tilkynningu sem birt er
opinberlega í írsku kauphöllinni (www.ise.ie) þar sem skuldabréfið er skráð. Að
uppfylltum tilteknum skilyrðum má nálgast skilmála endurkaupatilboðs hjá
umsýsluaðila endurkaupanna, Citi Agency & Trust (netfang:
citiexchanges@citi.com, sími: +44 20 7508 3867).

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 4665.







[]