2010-12-14 12:20:19 CET

2010-12-14 12:21:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

-Herdís Dröfn verður stjórnarmaður í Icelandair Group



Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið skipuð í stjórn Icelandair Group, en hún
hefur verið í varastjórn frá september 2010. 

Herdís Dröfn Fjeldsted er fjárfestingastjóri hjá Framtakssjóði Íslands. Herdís
Dröfn var fjárfestingagreinandi hjá Thule Investments frá 2004-2010. Hún er
framkvæmdastjóri Vera ráðgjöf ehf og stjórnarformaður Wave Operations Ltd.
Herdís Dröfn er með BSc gráðu í viðskiptafræði og er löggildur
verðbréfamiðlari. Herdís stundar nám í fjármálum fyrirtækja við Háskólann í
Reykjavík.