2009-05-12 11:26:17 CEST

2009-05-12 11:27:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður - Vaxtaákvörðun


Íbúðalánasjóður - Vaxtaákvörðun

Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari
breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og
íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón
af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. 

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem
haldið var 11. maí s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa.  Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,24%. 

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,50%. 

Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að
útlánavextir sjóðsins breytist sem hér segir:  Útlánavextir íbúðalána með
uppgreiðsluákvæði verða 4,70% en 5,20% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.  Hin
nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 12. maí 2009.