2022-08-18 19:30:02 CEST

2022-08-18 19:30:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Kvika banki hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 17. ágúst sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæðum II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 22.767.001 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Samkvæmt 19. gr. laga um upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 skal útgefandi, ef hann hækkar eða lækkar hlutafé sitt eða fjölgar eða fækkar atkvæðum, við fyrsta tækifæri og eigi síðar en á síðasta viðskiptadegi mánaðar birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Framangreind hlutafjárhækkun hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.854.722.308 að nafnvirði. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé utan eigin hluta. Af framangreindum hlutum á bankinn í dag 92.100.000 eigin hluti.  

Óskað hefur verið eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og sótt verður um töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.