|
|||
2024-04-24 10:41:55 CEST 2024-04-24 10:41:55 CEST REGULATED INFORMATION Nova Klúbburinn hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsNova Klúbburinn hf. - Leiðrétting - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunarFramkvæmd áætlunarinnar hefst í dag, miðvikudaginn 24. apríl. Léðrétt tilkynning er hér að neðan. Á aðalfundi Nova Klúbbsins hf. þann 21. mars 2024 var stjórn félagsins veitt heimild til að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Stjórn Nova Klúbbsins hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar til kaupa á eigin bréfum. Útgefið hlutafé Nova Klúbbsins er 3.683.966.464 hlutir og eru engir hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar. Endurkaupin nú munu, skv. ákvörðun stjórnar, nema allt að 550 milljónum kr. að kaupverði. Framkvæmd áætlunarinnar hefst í dag, miðvikudaginn 24. apríl, og mun áætlunin vera í gildi þar til framangreindri fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025. Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Íslandsbanki hf. mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram. Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri, í síma 770 1090 eða með tölvupósti á thorhallurj@nova.is. |
|||
|