2008-12-11 19:08:00 CET

2008-12-11 19:12:57 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Orkuveita Reykjavíkur fær sömu lánshæfiseinkunn og íslenska ríkið



Matsfyrirtækið Moody's gaf í dag Orkuveitu Reykjavíkur
lánshæfiseinkunnina Baa1. Það er lækkun frá fyrri einkunn Orkuveitu
Reykjavíkur og er hún í samræmi við breytingu Moody's á lánshæfismati
ríkissjóðs. Horfur eru taldar neikvæðar.
Helstu ástæður breytingar á einkuninni eru, að því er fram kemur í
frétt Moody's, erfiðleikar í íslensku fjármála- og efnahagslífi, sem
meðal annars birtist í nýlegri lækkun á lánshæfismati íslenska
ríkisins úr A1 í Baa1, með neikvæðum horfum.
Frétt Moody's er í viðhengi.