|
|||
2024-04-11 20:28:20 CEST 2024-04-11 20:28:23 CEST REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - Niðurstöður hluthafafundarEik fasteignafélag hf.: Niðurstöður aðalfundar 2024Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf., sem haldinn var fimmtudaginn 11. apríl 2024 kaus eftirtalda einstaklinga í stjórn félagsins: - Bjarni Kristján Þorvarðarson - Eyjólfur Árni Rafnsson - Guðrún Bergsteinsdóttir - Gunnar Þór Gíslason - Ragnheiður Harðar Harðardóttir Nýkjörin stjórn hefur haldið fund og skipt með sér verkum. Bjarni Kristján Þorvarðarson er formaður stjórnar. Á aðalfundinum voru samþykktar tillögur stjórnar og ályktunartillögur hluthafa eins og nánar greinir í viðhengi. Að auki fylgja með samþykktir félagsins og starfskjarastefna með þeim breytingum sem samþykktar voru á fundinum. Viðhengi
|
|||
|