2017-09-15 18:01:11 CEST

2017-09-15 18:01:11 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Vátryggingafélag Íslands hf. - Innherjaupplýsingar

VÍS - tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar.


Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. þann 15. mars 2017 var samþykkt að heimila stjórn að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins, þ.e. að hámarki kr. 222.349.754 hluti að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.

Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess.

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir eru að nafnverði kr. 55.000.000 hlutir, en það jafngildir um 2,47 % af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 600.000.000.  Heimildin gildir fram að aðalfundi félagsins 2018.

Endurkaupin verða gerð af Arctica Finance hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í höndum Arctica Finance hf. og verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 1.039.843 hlutir sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í ágúst 2017. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í Kauphöll Íslands, hvort sem er hærra.

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson í síma 660-5105 og í netfangi: fjarfestatengsl@vis.is.