|
|||
2012-05-18 12:09:57 CEST 2012-05-18 12:10:59 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirÚtgáfuáætlun Reykjavíkurborgar vegna skuldabréfaútgáfu fyrir allt árið 2012Í tilkynningu til kauphallar frá 29. desember 2011 var birt útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2012. Borgarráð samþykkti þann 26 apríl heimild til fjármálastjóra að undirbúa á grundvelli samþykktar fjárhagsáætlunar 2012 frá 6. desember 2011 lántökur á árinu 2012 fyrir allt að 6.230 milljóna króna. Heimildin nær til þess að undirbúa lántökur með útboði skuldabréfa í skuldabréfaflokki Reykjavíkurborgar RVK 09 1 eða úr nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki til 7 ára, RVK 19 1. Samkvæmt samþykkt borgarráðs frá 29. mars sl. ákveður fjármálastjóri hverju sinni m.t.t. markaðsaðstæðna hvort boðið verði út samtímis í báðum skuldabréfaflokkum eða aðeins öðrum hvorum. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt í hverju útboði til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboða, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.Áætluð útgáfa í RVK 19 1 á árinu 2012 er 3.500 mkr. Sjá útgáfuáætlunina í meðfylgjandi viðhengi. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|