|
|||
2014-05-14 18:01:00 CEST 2014-05-14 18:01:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtgáfa á RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboðÍ dag 14. maí fór fram gjaldeyrisútboð hjá Seðlabanka Íslands þar sem bankinn bauðst til þess að kaupa evrur gegn afhendingu á ríkisbréfum í verðtryggða flokknum RIKS 33 0321. Aðgerðin sem er liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum mun draga úr árlegri endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir kr. 255.104.928 að nafnverði. Samþykkt gengi evru gangvart krónu var 190 í útboðinu. Þann 12. maí var tilkynnt um fast verð bréfanna sem er 111,346340 kr. með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 16. maí 2014 (krafa 2,81%). 1 ____________________ 1 Hreint verð (e. clean price) 102,75 |
|||
|