2010-12-27 16:44:31 CET

2010-12-27 16:45:32 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsleg endurskipulagning





  --  Vinna við fjárhagslega endurskipulagningu hefst í janúar og áætlað að
      henni ljúki eigi síðar en 30. júní 2011.

  --  Endurskipulagningin er unnin í samstarfi við Arion banka hf. sem er aðal
      lánveitandi félagsins.

  --  Stefnt er að því að lán við Arion banka verði endurfjármögnuð og aðlagaðar
      betur að  greiðslugetu félagsins til lengri tíma.

  --  Öll lán og skuldir við lánadrottna eru í skilum. Fjárhagsleg
      endurskipulagning á ekki að hafa nein áhrif á skuldir við lánadrottna og
      snýr eingöngu að endurfjármögnun lána við Arion banka.

Við fall bankanna haustið 2008 sköpuðust óvenjulegar og sérstakar aðstæður á
íslenskum fjármálamarkaði. Í framhaldi af því versnaði fjárhagsstaða
Sláturfélagsins vegna mikillar veikingar íslensku krónunnar þar sem skuldir
Sláturfélagsinsins við lánastofnanir eru að stærstum hluta í erlendri mynt. Í
árslok 2008 var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 16% en hafði verið 36% í árslok
2007. Á undanförnum tveimur árum hefur verið gripið til fjölþættra
hagræðingaraðgerða til að bæta rekstur samstæðunnar. Í lok júní 2010 var
eiginfjárhlutfall samstæðunnar 27%. 

Sláturfélagið hefur komist að samkomulagi við viðskiptabanka sinn Arion banka
hf. að hefja í janúar n.k. vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins.
Áætlað er að henni sé lokið eigi síðar en 30. júní 2011. 

Langtímalán samstæðunnar voru 3.433 milljónir króna 30. júní 2010 og eru að
stærstum hluta við Arion banka. Stefnt er að því að lán við Arion banka verði
endurfjármögnuð og afborganir þeirra verði betur aðlagaðar að greiðslugetu
félagsins til lengri tíma með jafnari árlegum afborgunum. 

Öll lán og skuldir við lánadrottna eru í skilum. Fjárhagsleg endurskipulagning
Sláturfélagsins á ekki að hafa nein áhrif á skuldir við lánadrottna og snýr
eingöngu að endurfjármögnun lána við Arion banka. 




         Frekari upplýsingar veita:
         Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 - steinthor@ss.is
         Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 - hjalti@ss.is