2012-10-08 11:26:41 CEST

2012-10-08 11:27:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur í september 2012


Fjöldi farþega í millilandaflugi 18% fleiri en í september 2011

Félagið flutti 198 þúsund farþega í millilandaflugi í september og voru þeir
18% fleiri en í september á síðasta ári. Framboðsaukning  var 17% á milli ára.
Sætanýting nam 81,0% samanborið við 78,0% í september  2011.  Farþegum fjölgaði
mest á N-Atlantshafsmarkaðinum. 

Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru rúmlega 28 þúsund í september sem
er lækkun um 5% á milli ára.  Sætanýting nam 70,0% og jókst um 4,1 prósentustig
á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 5% m.v. september á
síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í
fyrra.  Fraktflutningar jukust um 14% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá
hótelum félagsins jókst um 24% frá september á síðasta ári. Herbergjanýting var
76,5% og var 4,1 prósentustigum lakari en í september 2011. 



MILLILANDAFLUG                    SEP 12   BR. (%)     ÁTÞ 12   BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                   198.207       18%  1.597.757       15%
Sætanýting                         81,0%   3,0 ppt      81,7%   2,1 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000)    714.056       17%  5.571.273       14%
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG   SEP 12   BR. (%)     ÁTÞ 12   BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                    28.233       -5%    266.161        0%
Sætanýting                         70,0%   4,1 ppt      68,5%  -0,8 ppt
Framboðnir sætiskm. ('000)        15.266       -6%    143.780        2%
LEIGUFLUG                         SEP 12   BR. (%)     ÁTÞ 12   BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting                    100,0%   7,7 ppt      92,3%   0,0 ppt
Seldir blokktímar                  2.578       -5%     24.009      -10%
FRAKTFLUTNINGAR                   SEP 12   BR. (%)     ÁTÞ 12   BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm. (ATK´000)       1.313       10%    138.782        7%
Seldir tonnkm. (FTK´000)           7.911       14%     66.211       18%
HÓTEL                             SEP 12   BR. (%)     ÁTÞ 12   BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur             22.200       24%    226.154       14%
Seldar gistinætur                 16.989       18%    170.312       20%
Herbergjanýting                    76,5%  -4,1 ppt      75,3%   3,7 ppt

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-70