2024-07-09 15:44:00 CEST

2024-07-09 15:44:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Arion banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 4. apríl 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar og 8. maí 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 27. viku 2024 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Tekið er fram að endurkaup sænskra heimildarskírteina (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi samkvæmt áætluninni er lokið. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Hlutir í eigu Arion eftir viðskipti
2.7.202411:10:36200.000129,0025.800.00040.279.215
2.7.202413:45:33200.000129,0025.800.00040.479.215
3.7.202411:04:53300.000130,0039.000.00040.779.215
4.7.202411:30:10200.000132,0026.400.00040.979.215
4.7.202414:24:26200.000132,5026.500.00041.179.215
5.7.202415:00:46500.000133,7566.875.00041.679.215


1.600.000 210.375.00041.679.215






Endurkaupum á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi er lokið.

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 27 samtals 43.160.187 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 27 samtals 44.760.187 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 3,06% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 34.115.024 hluti og 355.086 heimildarskírteini.

Heimilt verður að kaupa allt að 365.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,025% af útgefnum hlutum og allt að 36.135.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 2,473% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 2,5% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.950.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2024. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.