2015-03-26 13:01:09 CET

2015-03-26 13:02:10 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Ársreikningur

Reykjaneshöfn – Ársreikningur 2014


Meðfylgjandi er ársreikningur Reykjaneshafnar fyrir árið 2014 og
fréttatilkynning vegna hans, en ársreikningurinn var lagður fram og samþykktur
af hafnarstjórn 25. mars 2015. 



                                                                       Fjárhags-
                                           2014             2013     áætlun 2014
Rekstrartekjur                      609.288.355      219.268.626     711.900.000
Rekstrargjöld                       181.611.714      169.211.026     234.255.000
Hagnaður fyrir afskriftir           427.676.641       50.057.600     477.645.000
Rekstrarniðurstaða                  382.567.203        4.022.709     431.815.000
Tap ársins                       ( 103.467.236)   ( 650.503.476)   (297.210.000)
Eignir                              31.12. 2014      31.12. 2013     áætlun 2014
Fastafjármunir                    2.944.512.856    2.825.105.933   2.746.550.000
Veltufjármunir                      334.278.110       38.282.223     312.300.000
Eignir                            3.279.790.966    2.863.388.156   3.058.850.000
Eigið fé og skuldir                 31.12. 2014      31.12. 2013     áætlun 2014
Eigið fé                                      (                (               (
                                 4.542.619.565)   4.471.542.081)  4.502.655.000)
Langtímaskuldir og                7.343.597.143    6.826.486.871   6.904.485.000
 skuldbindingar                                                                 
Skammtímaskuldir                    478.813.388      508.443.366     599.755.000
Skuldir                           7.822.410.531    7.334.930.237   7.561.505.000
Eigið fé og skuldir               3.279.790.966    2.863.388.156   3.058.850.000
                                    31.12. 2014      31.12. 2013     áætlun 2014
Handbært fé til rekstrar           (20.174.078)    (139.345.125)     388.995.000
Veltufé frá (til) rekstrar          158.473.735    (137.829.018)     278.970.000





Ársreikningur Reykjaneshafnar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög
um ársreikninga og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar
fjármálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga. 



Starfsemi Reykjaneshafnar er fjármögnuð með rekstratekjum frá hafnarrekstri og
rekin sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki í 100% eigu Reykjanesbæjar. 



Rekstrartekjur hafnarinnar á árinu 2014 námu 609 millj. kr. og rekstrargjöld
kr. 182 m.kr. og þar af laun 69 m.kr. samkvæmt  ársreikningi.  Hagnaður fyrir
afskriftir 428 m.kr.  Afskriftir 45 m.kr. fjármunatekjur og -gjöld  486 mkr. en
tap ársins 103 mkr. 



Framkvæmdir voru nokkrar á árinu 2014, unnið við fráveitulögn að kísilveralóðum
ofl. og fjárfest fyrir 77 m.kr. 







Framtíðarsýn:



Lóðaúthlutun í Helguvík hefur nánast stöðvast frá árinu 2008 en undirritaður
var lóðarsamningur þann 11.04. 2014 við Thorsil ehf. undir kísilverksmiðju.
Einnig er reiknað með úthlutunum nýrra lóða á árinu 2015. 



Reykjaneshöfn undirritaði 27.4. 2006 hafnarsamning og lóðarsamning í Helguvík
við Norðurál. Fyrirhugað er að reisa allt að 270 þúsund tonna álver í áföngum. 
Fyrsti áfangi yrði 90 þúsund tonna álver og hófust byggingarframkvæmdir við
hann í  maí 2008.  Óvíst er hvenær framleiðsla hefist en vonast að það verði á
árinu 2016. 



Góðar framtíðarhorfur Reykjaneshafnar.



Þrátt fyrir erfiðan rekstur Reykjaneshafnar árið 2014 og skuldir við
lánastofnanir sem nema um 4,3 milljörðum króna og víkandi lán Reykjanesbæjar 3
mkr., mun eignastaða Reykjaneshafnar styrkjast á næstu árum.  Það byggir á því
að virði lóðargjalda á óúthlutuðum lóðum í Helguvík, samkvæmt gjaldskrá, er um
4,5 milljarðar kr. 



Eftir endurfjármögnun langtímalánanna á árinu 2011, þá er áætlað að rekstur
hafnarinnar muni komast í jafnvægi á næstu árum með auknum tekjum vegna
hafnargjalda, lóðargjalda, lóðarleigu og fasteignarskatta tekjurnar verði hærri
en fjármagnskostnaðurinn og höfnin nái að greiða niður skuldir sínar.  Í þeim
áætlunum sem unnið var með gagnvart lánveitendum var gert fyrir að
byggingarframkvæmdir við kísilver fari af stað sumarið 2014 og rekstur hefjist
í byrjun ársins 2016.  En byggingar-framkvæmdir Sameinaðs sílikons hf. hófust
haustið 2014 og er áætlað að rekstur hefjist á 2. ársfjórðungi ársins 2016 eins
og áætlað var. 



Forsenda þess að uppbygging á nýrri atvinnustarfsemi í Helguvík geti átt sér
stað er að til staðar séu fullnægjandi innviðir, s.s. hafnaraðstaða og vegir. Í
þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2014-2017 er tekið fram
að ríkisstjórnin muni styðja við frekari uppbyggingu innviða á
Helguvíkursvæðinu með sambærilegum hætti og gert var á iðnaðarsvæðinu á Bakka.
Þess má geta að fjárfesting PCC á Bakka er áætluð um 28 milljarðar króna,
fjárfestingar Alcoa vegna álversins á Reyðarfirði voru um 140 milljarðar króna
og samanlögð fjárfesting Thorsil og United Silicon í Helguvík er áætluð um 40
milljarðar króna. 



Stjórn og framkvæmdastjóri vænta þess, að með nýjum hafnalögum sem samþykkt
voru þann 12. desember 2014, verði orðið við ósk Reykjaneshafnar um ríkisstyrk
við framkvæmdirnar í Helguvík á samgönguáætlun 2015 - 2018.  Og Reykjaneshöfn
verði veitt ríkisframlag á fjárlögum til að mæta uppbyggingu innviða í
Helguvík.