|
|||
2009-03-31 11:32:36 CEST 2009-03-31 11:33:36 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirCORRECTION: Tilkynning vegna útgáfu íbúðabréfaÞann 19. desember 2008 birti Íbúðalánasjóður áætlanir varðandi útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að upphæð 8-10 milljarða á fyrsta ársfjórðungi ársins, en samtals nemur heildarútgáfa fjórðungsins 5,87 milljörðum króna að nafnverði. Sjóðurinn hefur ákveðið að ekki verði farið í frekari útboð íbúðabréfa á fyrsta ársfjórðungi og mun hluti áætlaðrar útgáfu íbúðabréfa verða færður til annars ársfjórðungs ársins 2009. Útlán sjóðsins hafa verið minni á fyrsta ársfjórðungi en áður var gert ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu. Endurskoðaðar áætlanir sjóðsins verða birtar í lok sextándu viku ársins 2009. |
|||
|