2010-11-02 13:12:03 CET

2010-11-02 13:13:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýr framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs


Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur ráðið Sigurð Erlingsson sem framkvæmdastjóra
sjóðsins. 
Sigurður er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði frá Andrews University í
Bandaríkjunum (1994), löggiltur verðbréfamiðlari (1998), með M.Sc. í
viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál (2003) og MBA frá
Háskólanum í Reykjavík (2010). 
Sigurður starfaði hjá Landsbanka Íslands hf. frá 2000-2008, fyrst sem
sérfræðingur í greiningardeild og síðar sem forstöðumaður á Alþjóðasviði
bankans.  Frá 2008 starfaði Sigurður sem verkefnastjóri og sérfræðingur í
fjárhagslegri endurskipulagningu stærri fyrirtækja hjá NBI hf. Fyrir þann tíma
starfaði Sigurður sem millistjórnandi á fjármálasviðum nokkurra fyrirtækja.
Sigurður hefur verið stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og
við Stjórnendaskóla HR frá 2001. 
Sigurður er giftur Nönnu Guðnýju Sigurðardóttur sjúkraþjálfara og saman eiga
þau einn son. 
Sigurður mun hefja störf hjá Íbúðalánasjóði á næstu dögum.