2014-11-20 18:47:58 CET

2014-11-20 18:48:59 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eimskipafélag Íslands hf. - Ársreikningur

Eimskip kynnir afkomu þriðja ársfjórðungs 2014


Góð afkoma á þriðja ársfjórðungi 2014


  -- Rekstrartekjur voru 119,6 milljónir evra, jukust um 6,1 milljón evra eða
     5,3% frá Q3 2013
  -- EBITDA nam 12,6 milljónum evra, hækkaði um 0,5 milljónir evra eða 4,2% frá
     Q3 2013
  -- Hagnaður eftir skatta var 7,5 milljónir evra, jókst um 2,4 milljónir evra
     eða 48,0% frá Q3 2013
  -- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 7,3% frá Q3
     2013
  -- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 19,2% frá Q3 2013
  -- Eiginfjárhlutfall var 64,0% og nettóskuldir námu 32,3 milljónum evra í lok
     september
  -- Áætluð rekstrarafkoma ársins 2014 er á bilinu 38 til 40 milljónir evra

Gylfi Sigfússon forstjóri

„Þriðji ársfjórðungur 2014 er besti fjórðungur félagsins frá árinu 2009 hvað
varðar rekstrartekjur, EBITDA og hagnað eftir skatta. Rekstrartekjur námu 119,6
milljónum evra samanborið við 113,5 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og
jukust um 5,3%. EBITDA nam 12,6 milljónum á þriðja ársfjórðungi og óx um 4,2%
frá þriðja ársfjórðungi 2013. Bætt afkoma skýrist aðallega af auknu
flutningsmagni til og frá landinu, einkum vegna flutninga á bifreiðum,
byggingarvörum og makríl. Flutningsmagn til og frá Færeyjum hefur einnig
aukist, einkum vegna aukinna flutninga á makríl og laxi. Vöxturinn skýrist
einnig af auknu magni í frystiflutningsmiðlun og aukinni hagkvæmni í
siglingakerfinu eftir breytingar á rauðu leiðinni og eftir að gráu leiðinni var
bætt við á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Hagnaður eftir skatta nam 7,5
milljónum evra á fjórðungnum og jókst um 2,4 milljónir evra eða 48,0% frá
þriðja ársfjórðungi 2013, einkum vegna gengisbreytinga. 

Rekstrartekjur á fyrstu níu mánuðum ársins námu 332,8 milljónum evra og jukust
um 1,8% frá fyrra ári. EBITDA nam 29,7 milljónum á tímabilinu samanborið við
29,2 milljónir evra á sama tímabili 2013. Flutningsmagn í kerfum félagsins á
Norður-Atlantshafi á fyrstu níu mánuðum ársins jókst um 8,4% frá sama tímabili
í fyrra og jukust tekjurnar um 2,6%. Magn í frystiflutningsmiðlun jókst um
12,6% frá sama tímabili í fyrra, einkum vegna svokallaðra ”inbound“ flutninga.
Tekjur af flutningsmiðlun drógust saman um 0,4% á sama tíma en EBITDA af
flutningsmiðlun jókst um 3,8%. ”Inbound“  þýðir að Eimskip annast
tollafgreiðslu og flutning alla leið á svokölluðum ”door-to-door“ flutningum. 

Gengið hefur verið frá samningum við kínversku skipasmíðastöðina Rongcheng
Shenfei um að ljúka byggingu á Bakkafossi. Samningar náðust um viðbótarafslátt
að fjárhæð 0,8 milljónir dollara þannig að samningsverð skipsins nemur 18,0
milljónum dollara. Áætlaður afhendingartími Bakkafoss er á fjórða ársfjórðungi
2015. Skuldbinding vegna skipsins nam 4,9 milljónum dollara í lok september. 

Eimskip tilkynnti í nóvember ákvörðun um að ráðist verði í byggingu á 10 þúsund
tonna frystigeymslu á athafnasvæði félagsins í Hafnarfirði. Veruleg aukning
hefur orðið á veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski sem kallar á aukið pláss og
þjónustu frystigeymslu. Auk þess fer eftirspurn eftir vöruhúsaþjónustu fyrir
frystar neytendavörur vaxandi. Núverandi frystigeymsla Eimskips í Hafnarfirði,
Fjarðarfrost,  rúmar um  þrjú þúsund tonn. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist fyrir lok ársins og að fyrsti áfangi nýju geymslunnar verði tekinn í
notkun á síðari árshelmingi 2015. Mögulegt verður að stækka
frystigeymsluaðstöðuna í Hafnarfirði í áföngum í allt að 27 þúsund tonn í
samræmi við þarfir viðskiptavina. Áætlaður heildarkostnaður vegna þessarar nýju
10 þúsund tonna geymslu nemur 10 til 11 milljónum evra. 

Enn ríkir óvissa á vinnumarkaði hér á landi þar sem almennir kjarasamningar
gilda til loka febrúarmánaðar 2015. Eimskip hefur samið við áhafnir gámaskipa
sinna og áhöfn Herjólfs og gilda þeir samningar til ársloka 2015. 

Þann 1. janúar 2015 taka gildi nýjar reglur um takmörkun brennisteinsútblásturs
frá skipum á tilteknum svæðum (Emission Control Areas, ECA). Með reglunum er
skipafélögum gert skylt að nota olíu sem hefur brennisteinsinnihald að hámarki
0,1%, en hámarkið er nú 1,0%. Tildrög reglugerðarinnar eru samþykktir Sameinuðu
þjóðanna um umhverfisvænni sjóflutninga sem framfylgt er af
Alþjóðasiglingamálastofnuninni (International Maritime Organization). Reglurnar
munu hafa áhrif á allar siglingaleiðir Eimskips og munu óhjákvæmilega leiða til
hækkunar á olíukostnaði félagsins. Áætlað er að kostnaðarhækkunin nemi 8,5
milljónum dollara á ársgrundvelli miðað við núgildandi markaðsverð á olíu.
Flutningafyrirtæki víða um heim eru um þessar mundir að kynna til sögunnar nýtt
olíuálag til viðskiptavina sinna vegna þessara reglubreytinga. Eimskip hefur
þegar tilkynnt um nýtt olíuálag félagsins, svokallað LSS (Low Sulphur
Surcharge). Nýja olíuálaginu er ætlað að bæta fyrirtækinu upp þennan aukna
olíukostnað. Eimskip leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi sem
þjónustufyrirtæki í flutningum á Norður-Atlantshafi og er það bæði skylda og
ásetningur félagsins að sýna ábyrgð í þessum málaflokki og þróast í takti við
kröfur umheimsins í umhverfismálum. 

Varðandi rannsókn Samkeppniseftirlitins þá hefur Eimskip engar frekari
upplýsingar um hana en þær sem þegar hafa verið birtar og félagið hafnar með
öllu ásökunum um brot á samkeppnislögum. Rannsóknin, leki rannsóknargagna til
fjölmiðla og fréttaflutningur RÚV hafa skaðað ímynd Eimskips og valdið
hluthöfum félagsins tjóni. 

Eimskip vinnur áfram að því að leita tækifæra til að fjárfesta í takt við þá
stefnu félagsins að vera leiðandi flutningafélag á Norður-Atlantshafi, með það
að markmiði að vaxa og styrkja stöðu sína á mörkuðum utan Íslands. Unnið hefur
verið að undirbúningi tvíhliða skráningar á hlutabréfum félagsins í tengslum
við möguleg fjárfestingarverkefni og viðræður eru enn í gangi við Seðlabanka
Íslands um tvíhliða skráningu. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins, leki
trúnaðarupplýsinga rannsóknarinnar til fjölmiðla og umfjöllun RÚV um
rannsóknina hafa sett strik í reikninginn varðandi framgang tvíhliða skráningar
bréfa félagsins á hlutabréfamarkað erlendis. 

Ákveðið hefur verið að þrengja afkomuspá félagsins fyrir árið 2014 úr EBITDA að
fjárhæð 37 til 41 milljón evra í 38 til 40 milljónir evra.“ 

Frekari upplýsingar

  -- Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
  -- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs,
     sími: 525 7202
  -- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang:
     investors@eimskip.is