|
|||
2014-08-29 11:04:18 CEST 2014-08-29 11:05:19 CEST REGULATED INFORMATION Spölur ehf. - ÁrsreikningurSpölur - Árshlutauppgjör 1. janúar 2014 til 30. júní 2014-- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. janúar 2014 til 30. júní 2014 nam kr. 178,6 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. janúar 2013 til 30. júní 2013 nam 120,6 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2014 til 30. júní 2014 nam 139,7 m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 109,9 m.kr. -- Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 6 ár hefur verið sterk. Um 629 mkr. (2012:627 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu 1. janúar 2013 til 31. desember 2013 og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2013 eins og lánasamningar gera ráð fyrir. -- Veggjald nam 525 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 508 m.kr. árið áður sem er 3% hækkun. -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 164 m.kr. og lækkar um rúmar 13 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 177 m.kr. -- Afskriftir á tímabilinu námu 59 m.kr., sem er sama fjárhæð og árið áður. -- Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli tímabila um 43 m. kr. -- Skuldir Spalar ehf hækka úr 3.473 m.kr. þann 31. desember 2013 í 3.618 m.kr. þann 30. júní 2014. -- Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. Um uppgjörið Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur meiri en áætlanir fyrir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins gerðu ráð fyrir. Sama gildir fyrir árið í heild miðað við síðasta ár. ________________________________________________________________________________ _________________ Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910. |
|||
|