2016-02-19 17:09:49 CET

2016-02-19 17:09:49 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Landsvirkjun - Ársreikningur

Ársreikningur Landsvirkjunar 2015


Nettó skuldir lækka um 26 milljarða króna frá fyrra ári

Mesta raforkusala í sögu fyrirtækisins eða 13,9 TWst

Helstu atriði ársreiknings


  -- Rekstrartekjur námu 421,5 milljónum USD (54,0 ma.kr.) sem er 3,8% lækkun
     frá árinu áður.1
  -- EBITDA nam 321,5 milljónum USD (41,2 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 76,3% af
     tekjum, en var 75,8% árið áður.
  -- Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 130,6 milljónum USD (16,7
     ma.kr.), en var 146,9 milljónir USD árið áður og lækkar því um 11,1% milli
     ára.
  -- Hagnaður ársins var 84,2 milljónir USD (10,8 ma.kr.) en var 78,4 milljónir
     USD árið áður.
  -- Nettó skuldir lækkuðu um 205,0 milljónir USD (26,2 ma.kr.) á árinu 2015 og
     voru í árslok 1.985,4 milljónir USD (254,1 ma.kr.).
  -- Handbært fé frá rekstri nam 249,0 milljónum USD (31,9 ma.kr.) sem er 6,5%
     hækkun frá árinu áður.



Hörður Arnarson, forstjóri:

„Afkoma ársins var góð í krefjandi umhverfi. Rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA
hlutfall) hækkaði á milli ára, þótt álverð hafi farið lækkandi að undanförnu og
mikil óvissa hafi ríkt á mörkuðum. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam
16,7 milljörðum króna og raforkusala Landsvirkjunar á árinu 2015 var sú mesta
frá upphafi – 13,9 teravattstundir. 

Sterkt sjóðstreymi gerði okkur kleift að vinna áfram að lækkun skulda, en
hreinar skuldir hafa ekki verið lægri síðan 2005 og lækkuðu um rúma 26
milljarða króna á árinu. Síðan 2009 hafa þær samtals lækkað um ríflega 107
milljarða króna. Skuldsetning samstæðunnar, mæld á móti rekstrarhagnaði fyrir
afskriftir, lækkar töluvert og eiginfjárhlutfall er nú hærra en það hefur verið
frá upphafsárum fyrirtækisins. 

Í kjölfar þessarar góðu afkomu síðustu ára komu þau ánægjulegu tíðindi í byrjun
árs 2016 að lánshæfismat Landsvirkjunar var fært í fjárfestingarflokk. Þrátt
fyrir krefjandi umhverfi á flestum hrávöru- og orkumörkuðum er eftirspurn eftir
orku frá Landsvirkjun mikil frá fjölbreyttum iðnaði. Fyrirtækið vinnur, innan
þess svigrúms sem það hefur, að því að svara þessari auknu eftirspurn, en nú
standa yfir framkvæmdir við byggingu jarðvarmavirkjunar á Þeistareykjum og nú á
vormánuðum munu hefjast framkvæmdir við stækkun Búrfellsvirkjunar.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs

s. 515 9000