2024-04-15 19:27:54 CEST

2024-04-15 19:27:54 CEST


Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Fjárhagsdagatal

Sjóvá: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024 verður birt 19. apríl - kynningarfundur sama dag kl. 16:15


Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024 eftir lokun markaða föstudaginn 19. apríl nk.

Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 19. apríl nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni  https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-1f-2024/ .
Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson, í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is