2008-11-12 10:07:09 CET

2008-11-12 10:08:09 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

Marel Food Systems hf. semur um viðskiptavakt við Nýja Glitni banka hf.


Marel Food Systems hf. hefur gert samning við Nýja Glitni banka hf. (Glitnir)
um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. 
Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins
á Nasdaq OMX Nordic Exchange Iceland (Kauphöllin). Glitnir skuldbindur sig til
að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll í hlutabréf Marel Food
Systems (MARL) að lágmarki 200.000 kr. að nafnvirði á gengi sem Glitnir ákveður
í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en
1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð
heildarviðskipta dag hvern sem Glitnir er skuldbundinn til að kaupa eða selja
skal vera kr. 50.000.000,- að markaðsvirði. 
Samningurinn tekur gildi í dag, er ótímabundinn en uppsegjanlegur með tveggja
vikna fyrirvara.