2014-11-03 09:59:43 CET

2014-11-03 10:00:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 44. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 500.000 eigin hluti fyrir
11,8 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetning  Tími     Keyptir    Viðskiptav   Kaupverð    Hlutir í eigu TM eftir 
                      hlutir       erð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
28.10.2014  14:56    500.000       23,65    11.825.000         15.000.000       
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals              500.000                11.825.000                          
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar 30. apríl 2014. 

TM hefur nú keypt samtals 15.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 71,4% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 380,9 milljónum króna. TM á nú samtals 1,97%
af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en
31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr.
630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is