2012-08-21 16:34:54 CEST

2012-08-21 16:35:55 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Interim information (is)

Afkoma Sláturfélags Suðurlands á fyrraárshelmingi 2012


Afkoma á fyrri árshelmingi 2012



  -- Tekjur á fyrri árshelmingi 4.925 mkr. og aukast um 12% milli ára.
  -- 160 mkr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins.
  -- EBITDA afkoma var 471 mkr. en 468 mkr. árið áður.
  -- Eigið fé 2.831 mkr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 47%.

Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf. 

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2012 var
160 mkr.  Á sama tímabili árið áður var 921 mkr. hagnaður en á fyrra
árshelmingi 2011 voru gengistryggð lán félagsins leiðrétt. Eigið fé
Sláturfélagsins er 2.831 mkr. í lok júní. 

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 4.925 mkr. á fyrri
árshelmingi ársins 2012, en 4.397 mkr. á sama tíma árið áður og hækka því um
12%.  Aðrar tekjur voru 23 mkr en 31 mkr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 2.899 mkr. en 2.516 mkr. árið áður. Launakostnaður
hækkaði um tæp 13%, annar rekstrarkostnaður hækkaði um rúm 5% og afskriftir
lækkuðu um tæp 2%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 328
mkr., en 322 mkr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir
(EBITDA) var 471 mkr.  en var 468 mkr. á sama tíma í fyrra. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 150 mkr., en fjármunatekjur umfram
fjármagnsgjöld voru 804 mkr., á sama tímabili í fyrra. Niðurfelling gengistaps
lána og vaxta nam 1.027 mkr. á árinu 2011 og var leiðréttingin tekjufærð meðal
fjármagnsliða og skattaáhrif 205 mkr. færð til gjalda meðal skatta í
rekstrarreikningi.  Gengishagnaður nam 6 mkr. samanborið við 133 mkr. gengistap
árið áður.  Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um tæpar 17 mkr. en
árið áður um 20 mkr. Reiknaður tekjuskattur nam tæpum 36 mkr., en 225 mkr. árið
áður.  Hagnaður af rekstri tímabilsins var 160 mkr. en 921 mkr. á sama tímabili
árið áður. 

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 469 mkr. á fyrri árshelmingi ársins
2012, samanborið við 467 mkr. fyrir sama tímabil árið 2011. Heildareignir
Sláturfélagsins 30. júní  voru 6.064 mkr. og eiginfjárhlutfall 47%. 
Veltufjárhlutfall var 3,2 á fyrri hluta ársins 2012, en 2,4 árið áður. 

Sláturfélagið hefur samþykkt kauptilboð í eignarhlut sinn í Ísfugli ehf.  Gangi
salan á eignarhlutnum eftir mun hún hafa um 50 mkr. jákvæð áhrif á rekstur
félagsins á síðari árshelmingi 2012. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2012 var í aprílmánuði greiddur
15,2% arður af B-deild stofnsjóðs alls 27 mkr. og reiknaðir 15,2% vextir á
A-deild stofnsjóðs alls 38 mkr. 

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX.  Sláturfélagið
birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti.  Ráðgert er að birta afkomu
ársins 2012 þann 19. febrúar 2013. 



Staða og horfur

Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 47% eiginfjárhlutfall og
veltufjárhlutfall 3,2. Heildarskuldir samstæðunnar hafa lækkað um tæpa 2
milljarða króna frá miðju ári 2009. Eftir endurfjármögnun og uppgreiðslu lána
eru lán samstæðunnar nú til mjög langs tíma sem tryggir lága árlega
greiðslubyrði. 

Tæplega 3% söluaukning var í innanlandssölu á kjöti frá fyrra ári sem eru
jákvæð umskipti eftir erfið ár þar á undan. Útflutningshorfur á lambakjöti eru
hins vegar mun verri fyrir haustið en á sama tíma í fyrra. Bæði kemur til
verðlækkun og sölutregða vegna erfiðleika í Evrópu. Af þessum sökum er gert ráð
fyrir neikvæðum horfum á rekstur afurðahluta félagsins á síðari árshelmingi. 

Gert er ráð fyrir áframhaldandi bata í rekstri kjötiðnaðar á árinu 2012 en
markviss vöruþróun, markaðssókn og aðhald í rekstri eru farin að skila sér.
Styrking krónunnar hefur einnig haft jákvæð áhrif á erlend innkaup á
rekstrarvörum. 

Matvöruhluti innflutningsdeildar stendur ágætlega. Með nýjum viðskiptasamböndum
hefur vöruúrval verið aukið til áframhaldandi sóknar. Búvöruhluti
innflutningsdeildar stendur vel en sala á Yara áburði til bænda jókst
umtalsvert milli ára. 









Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 - steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 - hjalti@ss.is