2013-10-02 00:25:16 CEST

2013-10-02 00:26:17 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

CORRECTION: Breyting á stjórn Íbúðalánasjóðs


Hrund Hafsteinsdóttir hefur beðist lausnar úr stjórn Íbúðalánasjóðs og hefur
félags- og húsnæðismálaráðherra skipað Rósu Guðbjartsdóttur í hennar stað sem
varaformann stjórnar sjóðsins. 

Rósa Guðbjartsdóttir er fædd 29. nóvember 1965 og er stúdent frá
Flensborgarskóla og með BA í stjórnmálafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún
starfaði sem fréttamaður á Stöð 2 og Bylgjunni 1990 - 1999. Hún var
framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna 2001 - 2006. Frá árinu
2006 hefur Rósa setið í bæjarstjórn og bæjarráði Hafnarfjarðar. Hún hefur verið
ritstjóri BF-útgáfu (Bókafélaginu) frá 2009. Á árunum 2007 - 2013 var Rósa
varaþingmaður og sat m.a. á Alþingi frá 1. október 2008 til 31. desember 2008. 

Rósa hefur verið formaður Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna frá 2009 og í
fagráði Velferðarsjóðs íslenskra barna frá 2001.