2014-09-22 11:29:38 CEST

2014-09-22 11:30:15 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
REG3A fjármögnun - Fyrirtækjafréttir

REG3A fjármögnun : Breyting á undirliggjandi veðandlagi


Í janúar 2014 gaf REG3A fjármögnun út skuldabréf, REG3A 14 1, til fjármögnunar á
lánssamningi við Reginn atvinnuhúsnæði ehf. þar sem til tryggingar eru m.a. safn
fasteigna í eigu Regins ativnnuhúsnæðis. Samkvæmt þeim lánssamningi er Reginn
atvinnuhúsnæði heimilt að gera breytingar á veðandlagi svo lengi sem önnur
sambærileg veð komi í staðinn. Slíkt þarfnast þó samþykkis REG3A fjármögnunar
sem lánveitanda.

Reginn atvinnuhúsnæði hefur óskað eftir því að fá að selja Lóuhóla 6 109
Reykjavík, fastanr. 204-9258, og í staðinn verði sett að veði Funahöfði 19 110
Reyjavík, fastanr. 204-3048 og 225-3695.  Uppreiknað virði Lóuhóla 6 til
viðmiðunar í lánssamnigi er um 270 m.kr. og er virði þeirra eignar sem kemur í
staðinn sambærilegt samkvæmt óháðum matsaðila. REG3A fjármögnun hefur samþykkt
ofangreinda breytingu á veðandlagi í samræmi við skilmála lánssamnings og
útgefinna skuldabréfa REG3A 14 1.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA
sjóðir hf. í síma 510-1090.


[HUG#1857346]