|
|||
![]() |
|||
2017-05-15 11:15:04 CEST 2017-05-15 11:15:04 CEST REGULATED INFORMATION Síminn hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsSíminn: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunarÁ aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 16. mars 2017 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 944.420.174 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar hefur félagið tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin hlutum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins og/eða nota keypta hluti til úthlutunar til starfsmanna félagsins á grundvelli kaupréttaráætlunar sem samþykkt var á hluthafafundi félagsins 8. september 2015. Endurkaupin munu að hámarki nema 1.102 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2018, en þó aldrei lengur en til 16. mars 2018 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu. Arctica Finance hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 5.000.000 hlutir sem er innan við 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í apríl 2017. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast í dag mánudaginn 15. maí. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir. Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is |
|||
|