2014-07-17 00:59:56 CEST

2014-07-17 01:00:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. : Vegna ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)


Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tilkynnti í dag um formlega rannsókn á hugsanlegri
ríkisaðstoð í tengslum við útboð leigusamninga um afnot af ljósleiðara, áður í
umsjá NATO, sem Vodafone tók þátt í  árið 2008.

Samanber fyrri tilkynningu Fjarskipta hf., dags. 28. janúar 2014, eru Fjarskipti
ekki beinn aðili málsins, sem rekið er á milli Eftirlitsstofnunar EFTA og
íslenska ríkisins. Í janúar síðastliðnum ógilti EFTA-dómsstóllinn fyrri ákvörðun
ESA um að ekki þætti tilefni til að opna á slíka rannsókn. Ákvörðunin nú felur
ekki í sér endanlega niðurstöðu í málinu og gæti ESA að lokinni rannsókn komist
að þeirri niðurstöðu að ekki sé um að ræða ríkisaðstoð eða að ríkisaðstoðin sé í
samræmi við EES samninginn að hluta eða öllu leyti.

Það er afstaða Fjarskipta að ekki sé um ólögmæta ríkisaðstoð að ræða þar sem
samningur félagsins um leigu á téðum ljósleiðara  hafi verið gerður á grundvelli
útboðs. Stjórnendur félagsins munu fylgjast með framvindu rannsóknarinnar og
vera málsaðilum innan handar sé þess óskað.

Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem málinu vindur fram.

[HUG#1828351]