2012-10-24 19:08:35 CEST

2012-10-24 19:09:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : MP banki annast viðskiptavakt með sértryggt skuldabréf ISLA CB 15


Íslandsbanki hf. hefur samið við MP banka um að hinn síðarnefndi annist
viðskiptavakt með ISLA CB 15, útgefnum sértryggðum skuldabréfum (e. Covered
Bonds) Íslandsbanka. Í því felst að setja fram daglega kaup- og sölutilboð í
bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki ISK 20.000.000 króna að
nafnverði.

MP banki mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að tilboði hefur
verið tekið. Tilboðin gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og
sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og má vera 0,8%

Eigi viðskiptavakt MP banka viðskipti á einum degi fyrir 60.000.000 kr. að
nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu tilboða fram á næsta
viðskiptadag.

Viðskiptavaktin gildir frá og með fimmtudeginum 25. október 2012.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Jóhann Wathne, johann.wathne@islandsbanki.is
    og í síma 440 4607 / 844 4607.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
    gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is
    og í síma 440 3678 / 844 3678.

[HUG#1652059]