2012-11-19 10:27:08 CET

2012-11-19 10:28:09 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Reykjavíkurborg - RVK 19 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við endurskoðaða útgáfuáætlun 2012 að
efna til útboðs miðvikudaginn 21. nóvember. Eingöngu verður efnt til útboðs í
flokki RVK 19 1 að þessu sinni. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum
að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt
til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða
hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði.
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. 

Heildarstærð RVK 19 1 fyrir þetta útboð nemur alls 585 m.kr. að nafnvirði.

Flokkurinn hefur verið stækkaður um 585 m.kr. það sem af er árinu 2012.

Heimild til stækkunar skuldabréfaflokksins á árinu 2012 er 1.540 m.kr. að
nafnvirði. 

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 26. nóvember 2012.

Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Reykjavíkurborgar við Íslandsbanka, MP Banka og
Straum fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:



Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 693-9321