|
|||
2013-01-30 17:10:09 CET 2013-01-30 17:11:12 CET REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - ÁrsreikningurÁrsuppgjör Nýherja fyrir árið 2012111 mkr heildarhagnaður af rekstri Nýherja hf. Helstu niðurstöður: -- EBITDA 481 mkr og heildarhagnaður 111 mkr á árinu 2012. -- Nýherji hf. móðurfélag, TM Software og Dansupport A/S skila ágætri afkomu. -- Tap á rekstri Applicon fyrirtækjanna á árinu. -- Tekjur af eigin hugbúnaðarþróun um 750 mkr á árinu og afkoma góð á því sviði. -- Virðisrýrnun viðskiptavildar 92 mkr og tekjufærð skatteign 210 mkr. Þórður Sverrisson, forstjóri: „Afkoma af rekstri Nýherja á innlendum markaði var ágæt og samkvæmt áætlunum á árinu 2012. Áhersla hefur verið á þróun nýrra lausna fyrir viðskiptavini, bæði á sviði hugbúnaðar og tækniþjónustu. Tekjur af sölu eigin hugbúnaðar námu 750 mkr og skilaði ágætri afkomu. Sala á Tempo hugbúnaði, sem TM Software hefur þróað og seldur er á erlendum mörkuðum, vegur þar þyngst. Afkoma vörusölu var góð þrátt fyrir minni heildartekjur. Applicon félögin erlendis voru rekin með tapi á árinu, sem einkum má rekja til kostnaðarsamrar uppsetningar sem Applicon í Svíþjóð hefur unnið að fyrir sænskan banka. Applicon í Danmörku var rekið með halla framan af ári en skilaði hagnaði á síðasta ársfjórðungi. Afkoma Applicon félaganna er óviðunandi, en við væntum þess að eftirspurn eftir SAP lausnum aukist á næstu misserum og styrkist þá einnig rekstur Applicon félaganna.“ Nánari upplýsingar Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630. |
|||
|