2016-11-01 19:29:03 CET

2016-11-01 19:29:03 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Fyrirtækjafréttir

Byggðastofnun fær einkunnina i.AAA með stöðugum horfum


Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. hefur gefið út lánshæfismat
áByggðastofnun í fyrsta skipti. Einkunnin er i.AAA með stöðugum horfum en i.AAA
er besta einkunn sem Reitun gefur. Einkunnargjöf Reitunar miðar við innlendar
einkunnir í stað alþjólegra einkunna og er því i. bætt fyrir framan bókstafina.
Ríkissjóður fær viðmiðunareinkunnina i.AAA sem er besta mögulega einkunn sem
Reitun gefur. Aðrir útgefendur eru metnir út frá þeirri einkunn. Reitun flokkar
einkunnir frá i.AAA til i.BBB3 sem fjárfestingahæfar eignir. 

Byggðastofnun gerði samning við Reitun á árinu um greiningu og mat á lánshæfi
fyrirtækisins gagnvart fjárfestum á skuldabréfamarkaði. Með lánshæfismati fá
fjárfestar álit sérfróðra óháðra aðila til stuðnings við ákvörðun sína um kaup
á skuldabréfunum. 

Einföld ríkisábyrgð vegur þyngst í i.AAA lánshæfiseinkunn Reitunar á
skuldbindingum Byggðastofnunar. Að mati Reitunar er óumdeilt að Byggðastofnun
njóti sömu ríkisábyrgðar og t.d. Íbúðalánasjóður og að ríkissjóður muni styrkja
félagið með nægu eigin fé ef þörf er á því. Á árunum 2010-2013 lagði
ríkissjóður fram 6,6 ma.kr. eiginfjárframlag til stofnunarinnar og
eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar er í dag 21,73% skv. lögum nr. 161/2002 um
fjármálafyrirtæki. 

Byggðastofnun er ríkisstofnun, í eigu og á ábyrgð íslenska ríkisins. Hlutverk
stofnunarinnar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun
tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Útlánastarfsemi
Byggðastfonunar felst einkum í að tryggja litlum og meðalstórum fyrirtækjum
utan höfuðborgarsæðisins aðgang að lánsfé.

2016 Byggdastofnun.pdf