|
|||
2018-03-20 20:09:46 CET 2018-03-20 20:10:18 CET REGULATED INFORMATION Skeljungur hf. - Niðurstöður hluthafafundarSkeljungur hf.: Niðurstöður aðalfundar Skeljungs 2018Aðalfundur Skeljungs var haldinn í dag, þriðjudaginn 20. mars 2018 á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hófst kl. 16.00. Jón Diðrik Jónsson, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og Hendrik Egholm, forstjóri, fór yfir uppgjör félagsins og helstu þætt í starfsemi þess á árinu 2017. Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum má finna á heimasíðu félagsins: https://www.skeljungur.is/adalfundur2018 1. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár Aðalfundur samþykkti endurskoðaða ársreikninga samstæðu félagsins og móðurfélags vegna ársins 2017. 2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu Tillaga stjórnar um að greiða út arð sem nemur 0,24 kr. á útistandandi hlut eða 500 milljónir króna, sem er 43,7% af hagnaði ársins 2017 var samþykkt. Útborgunardagur verður þann 6. apríl 2018, 21. mars 2018 er arðleysisdagur og 22. mars 2018 verður arðsréttindadagur. 3. Starfskjarastefna Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytta starfskjarastefnu en hana má nálgast á vefsíðu Skeljungs: https://www.skeljungur.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=54be1bec- 1701-11e8-8103-005056a6135c 4. Þóknun stjórnarmanna, undirnefnda og endurskoðanda Tillaga um kjör stjórnarmanna, undirnefnda og endurskoðanda var samþykkt. Tillagan endurspeglar breytingar á stjórnum Magns og Skeljungs, þar sem stærstur hluti verkefna stjórnar Magns flyst til Skeljungs. Með þessu lækkar heildarkostnaður vegna stjórna og nefnda um 8,4%. 5. Kjör stjórnarmanna félagsins Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér í stjórn félagsins og voru þau sjálfkjörin: - Birna Ósk Einarsdóttir - Gunn Ellefsen - Jens Meinhard Rasmussen - Jón Diðrik Jónsson - Baldur Már Helgason 6. Kjör tilnefningarnefndar Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér til setu í tilnefningarnefnd félagsins og voru þau sjálfkjörin: - Katrín S. Óladóttir - Trausti Fannar Valsson 7. Kjör endurskoðanda Aðalfundur samþykkti að KPMG yrði endurkjörinn endurskoðandi félagsins. 8. Önnur mál Engin önnur mál voru löglega upp borin á fundinum og var honum slitið kl. 17:12. Hægt er að nálgast Ársskýrslu Skeljungs 2017 á vefsíðu félagsins: http://arsskyrsla.skeljungur.is/arsskyrsla-2017 Önnur gögn frá aðalfundi má finna á https://www.skeljungur.is/adalfundur2018 * * * Eftir aðalfund var haldinn stjórnarfundur, þar sem stjórn skipti með sér verkum. Jón Diðrik Jónsson var kjörinn til áframhaldandi stjórnarformennsku. Birna Ósk Einarsdóttir var kjörin varaformaður stjórnar. Í endurskoðunarnefnd tóku sæti Helena Hilmarsdóttir, Baldur Már Helgason og Jens Meinhard Rasmussen. Í starfskjaranefnd tóku sæti Jón Diðrik Jónsson og Birna Ósk Einarsdóttir. Þá var Jens Meinhard Rasmussen tilnefndur til setu af hálfu stjórnar í tilnefningarnefnd. Frekari upplýsingar veitir Hendrik Egholm, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is, s: 444-3000 / 840-3002. Skeljungur er olíufélag með starfsemi á Íslandi og í Færeyjum. Skeljungur selur eldsneyti og olíur til einstaklinga og fyrirtækja í sjávarútvegi, landbúnaði, landflutningum, flugi og til verktaka undir merkjunum Skeljungur, Orkan og OrkanX. Fyrirtækið selur einnig áburð og ýmsar aðrar efnavörur. Á Íslandi eru starfræktar 65 bensínstöðvar og 4 birgðastöðvar. Dótturfélagið Magn er rótgróið félag í Færeyjum sem rekur 11 smásölu- og bensínstöðvar víðs vegar um Færeyjar auk þess að reka 2 birgðastöðvar. Magn þjónustar einnig og selur olíu til húshitunar til einstaklinga og fyrirtækja í Færeyjum. Meginmarkmið Skeljungs er að að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt. www.skeljungur.is https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/ [] |
|||
|