2014-08-29 17:15:47 CEST

2014-08-29 17:16:48 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Jeratún ehf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. 1. janúar – 30. júní 2014


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við alþjóðlegan
reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið
samþykktur af Evrópusambandinu. 

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2014
var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 29. ágúst 2014. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess.
Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á
vettvangi sveitarfélaga. 

Hagnaður félagsins á fyrri hluta ársins 2014 nam 4.234 þús. kr. og í lok þess
var eigið fé jákvætt um sem nam 39.760 þús. kr. samkvæmt árshlutareikningi. Á
hluthafafundi í félaginu var hlutafé aukið um 25 milljónir kr. 

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með
ábendingu. 

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok tímabilsins námu eftirstöðvar lána 405
millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega
ábyrgð á greiðslu lánanna. 

Félagið er með leigusamning við menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á
Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur
eru 60.841 þús. kr. á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar
með vísitölu neysluverðs. 



Sturla Böðvarsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari
upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.