2019-10-16 15:00:00 CEST

2019-10-16 15:00:01 CEST


Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Fjárhagsdagatal

VÍS: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2019 og kynningarfundur


VÍS mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2019 eftir lokun markaða þann 23. október næstkomandi. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, fimmtudaginn 24. október, í húsnæði félagsins, Ármúla 3, klukkan 8:30.

Á fundinum mun Helgi Bjarnason forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á íslensku og á ensku á heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/ . Að auki verður hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur 

Nánari upplýsingar veitir Óskar Þorvaldsson, samskiptastjóri VÍS, í netfangi fjarfestatengsl@vis.is og síma 660 5252.