2014-04-11 16:43:00 CEST

2014-04-11 16:43:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0715 OG RIKV 14 1015


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0715 og RIKV 14 1015 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 0715:

Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.130 m.kr. að nafnverði. Öllum
tilboðum var hafnað. 

RIKV 14 1015:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.730 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 630 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,959 (flatir vextir
4,10%).