2016-12-19 17:18:41 CET

2016-12-19 17:18:41 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Reitir kaupa Alda Hótel Reykjavík


Samþykkt hefur verið tilboð Reita um kaup á fasteignum þeim sem hýsa Alda Hótel
Reykjavík á Laugavegi 66-70 í Reykjavík af L66 fasteignafélagi ehf. og Fring
ehf. Kaupverðið er 2.850 milljónir kr. og verður fjármagnað úr sjóði. Um er að
ræða 4.084 fm. fasteign sem verður öll í langtímaútleigu til Alda Hótel
Reykjavík ehf., og er áætlað að leigutekjur af eigninni muni nema um 240
milljónum kr. á ársgrundvelli en fyrirvari er gerður um endanlega samninga þar
að lútandi. Kaupin munu þá leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI)
Reita hækkar um rúmlega 205 milljónir kr. á ársgrundvelli. Að fyrirvörum
uppfylltum er áætlað að undirritun kaupsamnings og afhending verði um miðjan
janúar 2017. 

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660
3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.