|
|||
2009-08-31 19:23:48 CEST 2009-08-31 19:24:49 CEST REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - ÁrsreikningurEik fasteignafélag hf. - Sex mánaða árshlutauppgjör 2009Eik fasteignafélag hf. birtir í dag sex mánaða árshlutauppgjör sitt að loknum stjórnarfundi þar sem reikningar félagsins voru samþykktir. Niðurstaða Eikar fasteignafélags hf. fyrir fyrstu sex mánuði árisins 2009: Hagnaður fyrirtækisins var neikvæður um 333,9 milljónir króna. • Velta var 903 milljónir króna, sem er 12% aukning frá fyrra ári. • EBITDA var 660,5 milljónir króna, sem er 12% aukning. • Arðsemi eiginfjár á ársgrundvelli var -29,4%. • Heildareignir félagsins voru að andvirði 20,4 milljarðar króna. • Víkjandi fjármagn, þ.e. eigið fé, víkjandi lán og tekjuskattsskuldbindingar, var að andvirði 3,24 milljarðar króna. • Hlutfall víkjandi fjármagns var 15,9%. • Handbært fé frá rekstri var 193 milljónir króna. Þrátt fyrir þær efnahagsþrengingar sem nú ganga yfir, með lækkun á nýtingarhlutfalli og lækkun á leigu, hefur rekstur Eikar fasteignafélags gengið samkvæmt áætlun. Eftirspurn eftir eignum félagsins er góð. Ekki hefur tekist að semja um endurfjármögnun lána sem voru á gjalddaga í júní að fjárhæð 537 milljónir, en viðræður standa yfir. Fyrir utan þessi tvö lán hefur félagið að öllu leiti staðið skil á vöxtum og afborgunum, en félagið hefur ekki fengið frestun á sitt afborgunarferli. Þar sem leigutekjur hafa dregist saman og stór hluti fjármögnunar félagsins er vaxtaberandi skuldir er ljóst að reksturinn er erfiður og félagið þarf á endurfjármögnun að halda. Í ljósi aðstæðna verður ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en að hin varfærna fjárfestingastefna félagsins hafi borgað sig. Eigið fé félagsins í sex mánaða uppgjörinu var 2.096 milljónir. Frekari upplýsingar veitir: Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf. S. 590 2200 / 861 3027 |
|||
|