|
|||
![]() |
|||
2014-03-12 09:58:25 CET 2014-03-12 09:59:28 CET REGULATED INFORMATION Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 - ÁrsreikningurÁrsreikningur fagfjárfestasjóðsins REG 2 Smáralind vegna ársins 2013Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 Smáralind sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf á árinu 2012, tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013. -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi. -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi. -- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Ernst & Young hf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2013, efnahagi hans 31. desember 2013 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2013, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar um ársreikning REG 2 Smáralind veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464. |
|||
|